Tuesday, September 23, 2003
Jæja...biðst afsökunar á að vera bras-baun en er komin með betri bloggsíðu þar sem þið getið tjáð ykkur að vild bumburnar mínar NÝJA FÍNA BLOGGIÐ.. KOMIÐ OG LEIKIÐ VIÐ MIG JÁTAKK!!!
Jæja..nú er ég alveg hreinlega að gefast upp á pentagon blogginu...Hefur ekki virkað á 3.viku og það gengur ekki með mitt málæði svo ég mun blogga hér tímabundið... Hef ekki enn fattað hvernig þið sendið inn skoðanir en ég lofa að bæta úr því sem allra fyrst.. Vona reyndar að hitt bloggið komist í gagnið því þið vitið ekkert öll af þessu bloggi og eruð jafnvel bara ekkert að lesa þetta og ég er bara að skrifa fyrir sjálfa mig... Sem er svosumm allt í lagi því ég hef svooo gaman af mér....
Nú er ég auðvitað búin að gleyma langflestu sem á daga mína hefur drifið þessar vikur síðan bloggið dó. (Guð blessi bloggið). Ég var fyrstu vinnuhelgina mína þarsíðustu helgi og það var alveg fín.. Svolítið erfitt en bara gaman samt! Kom risastór kellingahópur og leigði herbergin uppá lofti á Súfistanum og keyptu sér allar kaffi og kökur svo ég lærði hratt þessa helgi og það var brjálað að gera.... Núna um helgina fór ég til Gunnsu systur í Skagafjörðinn og þyngdist um kíló. Ingþór fór austur á gæs (aðra en mig) fyrir helgi og ég var ein heima og þurfti að fara með strætó í skólann á föstudaginn og í gær. Sem er ekki gott því það er alltaf einhver sem lyktar illa í strætó og þarf maður að bíða í köldu strætóskýli með skrýtnu fólki og er feiminn og myglaður á almannafæri.... Vaknaði 06:30 á föstudagsmorgunninn og tók strætó 06:47. Var mætt í skólann 07:20 og hafði því misreiknað mig um einar 40 mínútur... Bætti mér það upp með að rölta í bakaríið og éta soldið áður en skólinn byrjaði. Svo á föstudaginn fór ég með Gunnsu systur keyrandi til Warmhill í Skagarfirði. Guðný var hérna að vinna í bænum svo ég bumbaðist bara með henni norður og átti þar rólega og góða óveðurshelgi og borðaði afskaplega góðan mat sem Guðný eldaði handa mér...MMmmm nammigott... Svo bakaði hún handa mér pönnsur á sunnudeginum og ég gerði bragðlaust kakó og síðan borðuðum við kvöldmat og ég fór spikfeit heim í rútunni rúmlega sex og var komin heim rúmlega 11 um kvöldið ennþá spikfeit..bomm... Svenni minn indæli frændi og Hrönn ... líka indæla.... komu og sóttu mig á BSÍ og kurrðu mig heim til mín!
Í gær kom svo Ingþór heim og ég varð fyrir eldingu og pantaði okkur flug til Danmerkur... Förum 22.okt og komum heim 26. JIBBÍJIBBÍJIBBÍ!!! Fáum gistingu hjá frk.Danaveldi Elvu vinkonu og ætlum að labba um allt og borða og versla og borða soldið meira... Því miður verður búið að loka tívolí en vonandi ekki Kristjaníu svo maður geti nú farið og heilsað uppá gamla vini...
Er í skólanum og hef mun meira að segja en læt þetta nægja að sinni og bið ykkur (þá fáu sem kíkja hingað) vel að lifa og ekki gefast upp á blogginu mínu þótt það hafi verið í messi í smá tíma
GBYMÍH
Svalbaunin