Monday, December 23, 2002

Er komin með nýtt og betra BLOGG....
Jæja...Þá er skötudagurinn mikli kominn...Þið vitið hvað mér finnst um skötu....Held ég fái mér bara banana og skyr í hádeginu. Er búin að borða óhollt síðan það fór að renna upp fyrir mér að jólin væru að koma og ég ekki komin á neitt átskrið að ráði.... Eygló og Óli, til hamingju með útskriftirnar og góðar einkunnir, þið eruð óvitlausari en ætla mætti! Eftir vinnu ætla ég að keyra út jólakortum og nokkrum pökkum...Svo ætla ég bara heim að klára að þrífa og éta Nóa konfekt sem við keyptum í mikilli verslunarferð er við fórum í Hagkaup í gær. Eyddum jólagjöfinni frá Heklu, sem var 15 000 kr.inneign, þar og reyndist það ansi létt verk. Eigum núna fulla skápa af ávöxtum, snakki, ís, konfekti og austurlenskum sósum !!! Ég fitnaði um 5 kíló bara við að raða þessu inn í skápana úff! Svo tókum við bara til og horfðum á sjónvarpið í gærkveldi. Óskabörn þjóðarinnar er lélegasta og leiðinlegasta mynd sem ég hef séð....Ef það hefði ekki verið svona mikið konfekt á stofuborðinu hefði ég hugsanlega farið inn í herbergi að lesa....En maður á víst ekkert að reyna og mikið á sig fyrir jólin !!!! Svo á laugardaginn fór ég út með vinkonum mínum á kaffihús og endaði kvöldið í bjórdrykkju og Subway áti....Elva mín komin heim frá Danmörku til að leika við mig...Við fórum svo einmitt saman á Coldplay tónleikana á fimmtudaginn...Sáum ekki Gwyneth Palthrow! En annars bara GLEÐINLEGAN SKÖTUDAG ! Og munið: hún bragðast eins og hún lyktar, Lifið heil !

This page is powered by Blogger. Isn't yours?