Friday, December 20, 2002

Skáld dagsins er faðir minn hann Jóhann sem lýsti veðrinu í morgun svona:

Hárauður er himininn
harla lágt er sólin.
Perlan ber í bakgrunninn.
Bráðum koma jólin.


Thursday, December 19, 2002

Jeijei...búin að öllu...kláraði að kaupa Bora gjöf í gær....jibbí !!! Hann verður sko glaður..Hann hefur svo gaman af golfi!! En já..smá útskýring á Bora nafninu hérna...Það var þannig að við vorum búsett Danmörku og fengum reikninga frá símanum þar..Og við höfðum skráð okkur gegnum síma og þurftum að stafa nöfnin okkar sem er mjög erfitt því allir sérhljóðarnir hljóma eins...Og Ingþór fékk reikning sem á stóð Ingbor Sigurdarson og ég fékk reikning sem á stóð Ælufúa Johannsdottir...GUÐI SÉ LOF AÐ ÆLUFÚU NAFNIÐ FESTIST EKKI VIÐ MIG...En Bori var ekki jafn heppinn..alltaf kallaður Bori reglulega. Kannski halda ókunnugir að hann bori bara svona mikið í nefið HEHEHHEHEHEH blessíbili

Monday, December 16, 2002

P.P.S. Hlakka til að sjá Coca Cola auglýsinguna ...I´d like to buy the world a Coke fallallaalalaaa..Af hverju komu hrísgrjónaframleiðendur eins og Uncle Bens eða Tilda ekki fyrst með þessa hugmynd?...I´d like to buy the world some rice and keep it from starving, happy kids with chubby cheeks and no flies in their eyes...... Christmas greetings from Olivia Oger, marketing director !!!
P.S. Skata er vond...Hver heilvita maður vill éta myglaðan slubbfisk sem hangir varla á beinunum og lyktar eins og sjórekinn hvalur á 10.degi ????????? sendir mér bara póst ef þið vitið svarið ! ritari@fron.is
Jæja, búin að pakka öllum jólapökkunum! Er búin í bakinu eftir að hafa bograð yfir þessu hálfan daginn í gær. Svo bjuggum við til snilldar jólakort...Ekkert föndurvesen, bara allt í tölvu! Auðvelt og skemmtilegt...Svo var ég bara að þvælast í búðir og eyða visaseðlum. Á núna bara eftir að kaupa Ingþórs gjöf..Veit sosum ekki hvort ég gefi honum neitt...Hann á svo mikið strákurinn...Kannski gef ég honum bara kerti og spil, það er alltaf góð gjöf og klassísk!! Keyptum okkar forláta flísfatnað um helgina sem fellur vel að fagursköpuðum líkömum okkar í Regatta búðinni, sem er stórfín búð! Er ekki enn byrjuð að baka. Er í seinni kantinum með það þetta árið HAHHAHAHAHAHAHAH

This page is powered by Blogger. Isn't yours?