Thursday, December 12, 2002

Og þarna var ég úti að skokka..í mestu makindum..í Skerjafirðinum mínum.... eða kannski frekar sveitt og þreytt og stynjandi....og beygi í sakleysi mínu inn Fáfnisnesið þar sem hann Dabbi Kóngur ríkir í hásæti sínu....Svo þegar ég er að skokka/lulla framhjá húsinu hans þá hrasa ég og dett á hausinn kylliflöt á jörðina....Fékk risa sár á hnéð, sjálfstæðissár....Ætli ég hafi rekist þarna á leynibyrgi Samfylkingar/Vinstri Grænna og það hefur verið njósnakíkir Steingríms Joðs sem hefur staðið uppúr jörðinni. Hann hefur þá eflaust verið að leita að einhverju til að vera á móti..Þyrfti að skella mér á pallana og athuga hann segi; ég er staðfastlega á móti því að offitu skokkarar fái að vera úti eftir klukkan 8 á kvöldin og skokka óáreittir framhjá óvinabúðum okkar!!!! Ég er allavega með svöðusár á hnénu og brotna sjálfsmynd eftir að hafa hrasað um þennan kíki og verð að segja að ég er staðfastlega á móti því að hleypa Vinstri Grænum inn í Skerjafjörðinn vitandi að þar er ríki Dabba Kóngs...sveiattan !!!

Wednesday, December 11, 2002

Ekki enn byrjuð á jólapökkunum..Bara á einum kassa...Machintosh kassanum mínum sem er óðum að hverfa oní belginn á okkur Ingþór BOMMSARABOMM og við springum bráðum !!!

Monday, December 09, 2002

Og þá eru jólagjafakaupin búin...Ásamt laununum mínum sem hurfu alveg rosalega hratt þessa helgina...Hmmm ætli það sé gat á veskinu mínu?? Verð að muna að gá að því. En þá er aðal brasið eftir og það er að pakka öllu dótinu inn....En því verður nú rumpað af á einni kvöldstund...Með jólaglögg í annarri og smákökur í hinni og pakkana í hrúgu útí horni...En jæja...Gerði ekkert annað um helgina en að kaupa gjafir svo ég hef frá litlu að segja. Ætla að fara að athuga með gatið á veskinu.....
Ég man seinustu línuna í ljóðinu mínu.....

Á mér buldi feikna kuldi
meðan ég þessa vísu þuldi


Það vantar samt eitthvað smá þarna fyrir framan....

This page is powered by Blogger. Isn't yours?