Thursday, December 05, 2002

Og af þessu tilefni vil ég minnast þess að árið 1990 (minnir mig) kom mynd eftir mig í ljóðabók barnanna en af einhverjum ástæðum kom ekki ljóðið sem ég samdi..Sem ég skil ekki því það var mjög vel ort miðað við mörg hinna illa ortu ömurlegu ljóðanna....En uppáhalds ljóðið mitt í þeirri bók var (já ég man það enn utanað) „Öll húsin í bænum standa, nema kaupfélagið, því það er farið á hausinn“ En mitt ljóð hljómaði svona og er tileinkað sundlaugarverðinum í Vesturbæjarlauginni, honum Ólafi.

KÁRI KALDUR KLAKA BER,
AUSTUR,VESTUR,NORÐUR FER,
UM FJÖLL,DALI,TÚN OG FLÓA,
KÁRI Í FROSTIÐ FER AÐ HÓA......

svo man ég ekki meira..bara að það var líka snilld....
Og orð dagsins á hann Ólafur sundlaugarvörður í Vesturbæjarlaug þar sem þakið var við það að fjúka í óveðrinu.... (birt algerlega í leyfisleysi af mbl.is ) Aðspurður hvers vegna þakið færi af með þessum hætti svaraði Ólafur: „Það er hann Kári, Kári vindur, hann náði sér einhvern veginn undir klæðninguna og svipti henni af í einhverri hryðjunni. Já, hann er öflugur, sá gamli."

Wednesday, December 04, 2002

Það eru allir að spyrja mig hvað ég vilji í jólagjöf...Agalega er þetta erfitt. Sérstaklega þegar maður á mikið dót...En annars held ég að ég sé frekar auðveld gjafapersóna..Mér finnst nebbnilega ódýrt glingur mjög flott og verð himinlifandi á að fá bara einn sokk eða eyrnaskjól. Ég átti einusinni eyrnaskjól sem voru pandabirnir...Og svo átti ég rauð eyrnaskjól sem ég lánaði Möggu og hún týndi þeim...ÉG HEF EKKI ENN FYRIRGEFIÐ HENNI ÞAÐ!!! Annars vil ég benda öllum þeim sem lesa þetta blogg á Hagkaup. Þar er verið að selja eldhúsdót, bæði úr tré og krómað..Eða svona silfur...eitthvað...Sem er óendanlega flott og mjög ódýrt.Skálar, brauðbretti og allskyns dót..Sko þarna eruð þið komin með gjafir fyrir mömmu ykkar og pabba og alla vinina..Kannski ætti ég að skýra bloggið mitt Innblogg Útblogg?...GUÐ BLESSI YKKUR ÖLL (þau 2 ykkar sem trúa á Guð og lesa þetta blogg)

Tuesday, December 03, 2002

Má ég benda þeim sem eru að reyna að komast í kjólinn fyrir jólin á að> KAUPA SÉR STÆRRI KJÓL !!!
Ótrúlegt hvað einn maður getur bloggað mikið um perur.....Ég á tvö fimm arma aðventuljós....Samt eru sjö arma mun algengari......Hef ég heyrt.....Ég er farin að hlakka til jólanna...Mig langar austur, ekki Ingþór...Hvað get ég gert í því??? NÚ BARIÐ HANN TIL HLÝÐNI.... Er að hugsa um að senda handrukkara á hann..Hef heyrt að það virki vel..Ætla að prófa það....

Monday, December 02, 2002

Nú er íbúðin mín öll skreytt og óendanlega krúttileg....Ég ólst nú upp við það að það var aldrei skreytt neitt heima fyrr en bara á Þorláksmessu og hef ákveðið að kasta þeirri hefð bara í ruslið og skreyta 1.des. Það er svooo gaman að hafa fallegar seríur og flott skraut og íbúðin er svo flott....Og ég man hvað ég hneykslaðist á Halldóru vinkonu minni og hennar fjölskyldu þegar þau voru búin að skreyta svona snemma..FYRIRGEFÐU HALLDÓRA MÍN !!!! Svo fór ég og keypti nokkrar jólagjafir og fór út að borða á Ítalíu með Ingþóri á 6 ára kærustuparaammælinu okkar í gær! Mjög huggulegt.....mmmm svo borðaði ég nammi báða dagana (þó ég eigi bara 1 nammidag í viku) og glápti á DVD og tók ýkt vel til...skúraði og allt.....Annars á maður ekkert að vera að taka til heima hjá sér...þá sér maður bara hvað það er skítugt!! Borgar sig engan veginn. Svo dreymdi mig að það hefði hrapað íslensk þota í leiguflugi einhversstaðar og ég var einmitt að fara að fljúga. HATA flugslysadrauma og köngulóardrauma. Hef dreymt jafn stóra könguló og var í Harry Potter..Nema það var góð lykt af henni og hún var vinkona Dúddu Lú.... En nóg í bili bless!

This page is powered by Blogger. Isn't yours?