Thursday, November 28, 2002

JEIJEIJEI kaupsamningur dauðans er búinn!!! Loksins get ég sofnað án þess að gráta mig í svefn..loksins get ég andað léttar og hlaupið glöð um á ný loksins get ég borðað á ný !!!! (ok þeir sem vilja trúaa því að ég hætti að borða gessovell) Nú er ég að fara út á völl að ná í Gunnsu sys sem er að koma með flugi að austan...síðan ætla ég meða henni á salatbar Eika og þar ætla ég að éta yfir mig enn eina ferðina....
Begga hún er gömul geit
Átti heima uppí sveeeit
Fer á sínum Skóda
Þorra til að blóta !!!

Lag og texti: Ólafía Sjóveika
samið fyrir þorrablót í Nesskóla 1991
breytt til heiðurs Berglindi Sveinbjörnsdóttur nóv 2002.

(eiginlega eins og þegar Elton breytti Candle in the
wind því hann nennti ekki að semja nýtt lag um
Díönu prinsessu...Alltaf hentugt að eiga góð lög
sem þetta á lager.....)

Monday, November 25, 2002

JEI gestirnir loksins farnir!! Þau voru ekkert smá erfiðir gestir..Voru úti of lengi og voru með læti og sóðaskap...Eins gott að við rukkuðum þau fyrirfram 50 000 fyrir gistinguna, annars hefðum við ekki haft efni á því að laga skemmdirnar.... En ég er alveg búin eftir át og drykkju þessarar helgar...partý og matarboð og Harry Potter sem var hrein snilld eins og við mátt búast...Ég ætla samt ekki að fara neitt frekar útí partýsögur þar sem ég veit að aldraðir foreldrar mínir lesa bloggið mitt og fá hland fyrir hjartað ef ég segi þeim frá öllu tequila slamminu og fatapókernum...Myndi aldrei gera þeim það.....Svo fór ég í eina skírn sem skyndilega breyttist í brúðkaup öllum að óvörum og enginn var með pakka svo þau fengu ansi marga skyndiblómvendi í brúðkaupsgjöf.....GOTT Á ÞAU.....Svo var ég að klára afsal dauðans í dag mér til mikillar gleði og á morgun er kaupsamningur dauðans og þegar hann er búinn verð ég hamingjusamasti ritari á jarðríki....MMmmm kannski fyrir utan MoneyPenny sem umgengst svo sæta gæja í vinnunni..Umm hvað get ég sagt meira um gleði helgarinnar....Ekki neitt held ég bara...Ætli ég fari ekki bara heim og bjargi bumbulínu úr prísund sinni því hún læsti sig úti heima hjá sér og er sníkjudýr heima hjá mér núna..örugglega búin að tæma það litla sem var í ísskápnum og éta allt poppið ef ég þekki hana rétt....Vonandi fékk hún sér brauð...því það var farið að eldast ískyggilega hehehhehehe.......GUÐBLESSIYKKURÖLL

This page is powered by Blogger. Isn't yours?