Friday, November 22, 2002

Það er allt í lagi að nota HÁSTAFI.....Þá sýnir maður reiði,gleði og önnur skemmtilegheit...Það finnst samt ekki honum Óla Matvendnisbloggara...Þetta fer eitthvað fyrir brjóstið á honum EN ÉG KIPPI MÉR SKO EKKI UPP VIÐ ÞAÐ !!! hohohohohohohoho....Fór út að borða í boði Onkel Sven á Flatböku-kofann...Mmmmmm, át aldrei þessu vant yfir mig og er eiginlega ennþá södd....Að sjálfsögðu kom Ingþór með og svo Matvendnisbloggarinn og Frú, sem er Onkelina Eygló....MMmmmm flatbökur á Flatbökukofanum eru góðar og það lekur fita úr botninum á þeim...ÉG ER BÚIN AÐ VERA DUGLEG AÐ FARA Í RÆKTINA ÞESSA VIKU !!!!!

Thursday, November 21, 2002

Ég meina það...Fór inn í Mál og Menningu í gær og hvað er það fyrsta sem ég sé liggjandi á tilboðsborðinu þar???? KONUR MEÐ EINN Í ÚTVÍKKUN FÁ ENGA SAMÚÐ.....Ég endurskírði búlluna með það sama og heitir hún núna MÁL OG ÓMENNING....Fór samt lengra inn og keypti teikniblokkir og eyddi kvöldinu í að teikna bífurnar á Bryndísi..ég meina Bumbulínu systur...þær eru skakkar og það stendur undarlegt bein út úr þeim...Ég á sko að teikna bífur (tásslur og fót) á teikninámskeiðinu mínu...Það er mjög erfitt að teikna fætur samt...Ætla að æfa mig á löppunum á Svenna frænda sem er víst með einar þær hræðilegustu sem sögur fara af....Verst er að þá heldur teiknikennarinn minn að ég teikni svona rosalega illa og trúir mér ekki þegar ég segi henni að fjölskyldutærnar eru bara skakkar og skældar...Minnir mig á að fá að teikna tærnar á pabba þegar ég fer næst heim...Og beinið hennar mömmu...Annars kom Svenni frændi til mín í gærkveldi og ætlar að vera fram á sunnudag...Svo kemur Hrönn á föstudaginn og keppir í blaki og gistir hjá honum Svenna sínum...JIIIII hvað það er erfitt að vera með gesti..maður þarf að passa sig að vera sæmilega til fara og eiga mat í ísskápnum og það er hreint ekki svo auðvelt í svona langan tíma...En ég hlýt að meika það!! Verð nefnilega svo upptekin um helgina...innflutningspartý...matarboð...skírnarveisla og HARRY POTTER á sunnudaginn....Samt gott að hafa gesti að heiman..þá heyrir maður djúsí kjaftasögur ein og að Kalli Einars var keyrður í klessu af Skóda-keyrandi Eskfirðingi...ÞAÐ ÆTTI EKKI AÐ LEYFA ESKFIRÐINGUM AÐ TAKA BÍLPRÓF...ÞAÐ KEYRIR NEBBNILEGA ALDREI NEINN Á NORÐFIRÐI HRATT OG KLESSIR Á!!! ÓNEI SEISEI....JEIJEIJEI...hlakka til að sjá Harry, Ingþór ætlar með..heldur að hann sé að fara á Harry og Heimi-the movie....hann hefur nefnilega verið að hlusta á gamlar upptökur með þeim síðustu daga....ég ætla ekki að segja honum sannleikann...ÞAÐ Á AÐ FARA AÐ BYGGJA HÚS Í NESKAUPSTAÐ...ÞAÐ FYRSTA Í 12 ÁR...mamma sagði mér fréttirnar í morgun..svo sá ég þær á MBL.IS..er það nú ekki sorglegt, að það fari á mbl.is þegar 1 hús er byggt í einhverju krummaskuði...Sýnir hvað Neskaupstaður byggist hratt og örugglega upp..Ætli það rísi fleiri hús á Rifi???hvað ætli hafi verið mörg hús rifin á 12 árum, hmmm...gaman væri að vita það....úff komin með skrifkrampa...Hugleiðing dagsins: ætli það yrði byggt annað hús á næstu 12 árum ef álverið kæmi....???

Wednesday, November 20, 2002

Heheheh bloggið hennar Steinunnar er fyndið.....

Tuesday, November 19, 2002

Jiiiiii ég roðna og blána...það er vísað til mín á síðu hjá annarri ungri stúlku sem heitir Þórdís.....Hún er með allskyns krækjur og sniðugheit á sinni síður sem ég vissi ekki einu sinni að væri hægt að gera...Best að fara og æfa sig í blogginu þegar maður kemur heim í kvöld....Er að borða sterkan mola þó ég hafi lofað mér að vera í nammibanni á virkum dögum...Hmmm hafiði tekið eftir að maður fær minna samviskubit af því að drekka vatn með nammi en að drekka kók....En jæja...er að vinna..Ætla að reyna að halda því áfram svo ég verði nú ekki rekin!!!!

Monday, November 18, 2002

Jæja þá...Er að gera mitt besta í að vera mega-bloggari eins og Beta Rokk...reyndar les ég aldrei bloggið hennar en skiptir engu....EN VISSUÐ ÞIÐ UM NÝJA MÁG MINN???? Á föstudaginn sátum ég og Bumbulína systir og horfðum á Skjá einn/Skay one.....og þar var verið að sýna djúpu laugina með honum Hálfdáni.....En allavega þá var hann að taka viðtal við Erp Eyvindarson sem sagði að hann væri komin með kærustu sem héti BRYNDÍS ZOEGA......við urðum skrýtnar í framan...ÞAÐ ER NEBBNILEGA BARA TIL EIN Á LANDINU SEM ER BUMBULÍNA SYSTIR MÍN OG HÚN HAFÐI EKKI HUGMYND UM AÐ HÚN VÆRI MEÐ JOHNNY NASH!!! Eins og ég hef oft sagt henni þá verður hún að fara að hætta á spíttinu..hún er ekkert farin að muna lengur...EN ALLAVEGA varð mamma rosa glöð að fá barþjón í fjölskylduna því hún hafði heyrt að hann Erpur væri svo flinkur að blanda MOLOTOV kokkteil....ÞAÐ VERÐA SKO ÞRUSU GRILLVEISLUR Á FRANSKAMELNUM NÚNA!!! Eða eins og Bubbu Morthens (talandi um of mikið spítt) myndi orða það ALGER B*O*B*A =BOOOOMMMBAAAAEn best að fara að koma sér í rúmið...komið yfir kristilegan háttatíma...GÚNATTT

This page is powered by Blogger. Isn't yours?