Thursday, October 31, 2002

ÞETTA ER EKKI ENDAJAXL AÐ KOMA UPP...BARA ÓÞOLANDI MUNNANGUR!!!! hafiði tekið eftir að maður er alltaf að juðast í munnangrinu með tungunni sem gerir það bara enn verra.... En Bryndís....Nýjasti sölumaðurinn sem heitir Árni sagði SNILLI áðan..MUHHAHAHAHHAHHA Þetta er að ganga..og það sleppur enginn...Ég fór á Red Dragon í bíó í gær og verð nú bara að segja að þetta var hrikalega spennandi mynd...Gerði bókinni góð skil...Mig dreymdi Francis Dolarhyde í alla nótt..en þegar ég vaknaði sá ég bara Ingþór krumpaðan á koddanum sínum...að hrjóta OG slefa...hehehehe ok neinei...mesta lagi hrjóta smá....Jæja...best að hætta þessu rugli....Ferðakveðjur til Rebekku í Barcelona...Ekki láta krókódílana éta þig.....

Tuesday, October 29, 2002

Jæja...hætt að vera lasin...er samt að fá endajaxl sem er nú ekki skemmtileg lífsreynsla...Ætla að binda spotta í tönnina á mér og aftan í strætó til að losna við jaxlinn....Var í sumarbústað um helgina...Af hverju á maður ekki heima í sumarbústað..Bjálkakofa með heitum potti OG óendanlega mikið af mat....??? Getur einhver svarað því??? VERÐ AÐ FARA TIL TANNLÆKNIS...andsk.djö..helv...djö.... Það hefur nú enginn heilvita maður efni á því...svo kíkir hann uppí mig...segir að ég sé að fá endajaxl, búið...EINS OG ÉG VITI ÞAÐ EKKI!!!! SVO rukkar hann mann um 6000 kall...og svo er það eitt...af hverju eru ekki nýrri blöð en 1985 í blaðabunkunum, þeir hljóta nú að græða á tá og fingri en tíma samt ekki að splæsa í Séð og Heyrt eða Gestgjafann !!! SKÍTAPAKK !!! En ég er svo glöð því að greiðslubyrðin okkar var að lækka um hellings á mánuði og nú verður auðveldara að borga Prag-visað...jeijeijei LENGI LIFI SPARISJÓÐUR NORÐFJARÐAR !!!!!!!!!!!!!!!!!! HÚRRA-HÚRRA-HÚRRA........

This page is powered by Blogger. Isn't yours?