Friday, October 11, 2002

Vá...er í sjokki yfir sjálfri mér.....ekki nóg meðþað að við séum að fara til Praha og eyða fullt af pening sem er hreinlega ekki til heldur keyptum við 90 ÞÚSUND KRÓNA HEIMABÍÓ !!!!!!!!!!!!! LENGI LIFI VISA RAÐ-HÚRRA-HÚRRA-HÚRRAAAAAAAAAAA....ern nú er helgin framundan og ég ætla að fara að horfa á CHARMED....
Mér finnst andstyggilegt þegar manns eigin systir gerir atlögu að manni í blogginu sínu...Svoleiðis systir á ekki skilið að vera boðið í mat í framtíðinni né fá nokkuð lánað framar !!!!! Og vitið þið hvað bzoega stendur fyrir?? BUMBULÍNA ZOËGA...HAHAHAHHAHAHA.....Svona er þetta..maður er bara kominn í blóðugt bloggstríð áður en maður veit af...þetta er hræðilegt....og ég sem hélt að þetta væri friðsæl lítil síða til að skrifa sínar innstu hugsanir um mat og annað skemmtilegt á...EN NEI...ÞÁ ER BARA RÁÐIST Á MANN....Og ég vil líka benda á að enginn lifir án matar HAH....svo hvers vegna þá ekki að hafa gaman að því sem maður neyðist til að gera á hverjum degi eins og að BORÐA....klæða sig..tannbursta sig...og..ýmislegt annað ;) En ekkert blogg í næstu viku ÞVÍ ÉG VERÐ Í PRAHA AÐ KAUPA KRISTAL!!!!!!
GUÐ BLESSI YKKUR ÖLL....NEMA ÞAU SEM GERA GRÍN AÐ MÉR Á BLOGGINU SÍNU !!!!!

Thursday, October 10, 2002

Jæja...mánudagsþunglyndið loksins farið að hverfa og helgin farin að nálgast...=Pragferðin líka....JIBBÍ....Búin að vera einstaklega löt alla vikuna að fara í ræktina...Mitt nærri fullkomna vaxtarlag farið að afmyndast..Er farin að líkjast Önnu Nicole meira en Pamelu A...Sem er slæmt...Ótrúlegt hvað maður byrjar alltaf fullur af orku á haustin við að gefa sjálfum sér loforð um að fara út að hlaupa og oft í ræktina og verða 90-60-90 á mettíma...En hvað gerist svo...ekkert...Maður er sama gamla klessan....Svona er þetta.....maður er víst bara mannlegur....Æjá...lofaði systur minni henni Bumbulínu að skrifa hvað síðan hennar væri skemmtileg því það fer aldrei neinn að skoða hana....Hún grét bókstaflega á öxlina á mér og grátbað mig að setja linkinn hennar inná vinsælu bloggsíðuna mína sem þúsundir heimsækja á degi hverjum..að minnsta kosti...En ráðlegging dagsins; Ef þið viljið vera leiðinleg við vinnufélaga ykkar segið þá við þá meðan þeir eru að borða..(helst með röddu leiðinlegs gamalmennis) ÉTA...ÞAÐ ER ÞAÐ SEM MENN GETA...EN VINNA...ÞAÐ ER NÚ EITTHVAÐ MINNA......En verið sæl og bless að sinni....Over and BLOG

Monday, October 07, 2002

>:( Hvernig er ætlast til að maður skrifi blogg á mánudegi þegar mánudagar eru leiðinlegustu dagar í heiminum....Ef ég væri ekki á módelteikninámskeiðinu mínu á mánudögum þá held ég að ég myndi bara leggjast í kör og ekki tala við neinn né stíga framúr rúminu á mánudögum....Stundum hef ég óskað þess að helgin væri 3 dagar..En þá væri þriðjudagar bara mánudagar í staðinn og þriðjudagar eru nú nógu slæmir án þess að þeir séu mánudagar...Mánudagar eru SVO leiðinlegir að þeir smita sunnudaga og sunnudagar eru oft þunglyndislegir rigningardagar...Skyldi það kannski tengjast því að þetta sé dagurinn sem maður á að fara í kirkju en gerir ekki því maður er svo helv..heiðinn og guð gerir sunnudaga þess vegna svona þunglyndislega????? ÞAÐ GÆTI NÚ BARA VERIÐ SVARIÐ!!!!! Fyrir utan hvað mánudagar eru leiðinlegir þá var helgin ágæt....Fór í matarboð og út að borða og hef því eflaust lést um einhver kíló því eins og vanalega borðaði ég eins og fugl=þyngd mína á einum degi...Synti 30 ferðir í vesturbæjarlauginni....Svo hugsaði ég um hvað ég ætti lítinn pening og keypti mér lekkera blússu....ER EKKI LÍFIÐ DÁSAMLEGT...nema á mánudögum.........

This page is powered by Blogger. Isn't yours?