Friday, October 04, 2002

Kristall kristall kristall...hvað er það með þennan kristal...Nú eins og áður hefur komið fram þá er ég að fara til Praha.....Og þegar ég segi fólki það eru viðbrögðin yfirleitt: JIIII ÆTLARÐU EKKI AÐ KAUPA KRISTAL??? HANN ER SVO ÓDÝR ÞARNA...... Bíddu..eru ódýru Ikea glösin mín eitthvað ljót..hugsar fólk þegar það kemur heim til mín: oj hvað Olla á ljót glös..hana vantar greinilega kristalsglös...EN NEI ég ætla ekki að kaupa kristal, nema að ég sjái eitthvað sem fær mig til að míga í brækurnar af hrifningu...Ekki misskilja mig..kristalsglös eru oft mjög falleg...Það er bara svo margt annað skemmtilegt sem má gera í Prag en að húka í kristalsbúðum, t.d. BORÐA...SKOÐA SIG UM...DREKKA PIVO..BORÐA SVOLÍTIÐ MEIRA...KAUPA SÉR DRASL MINJAGRIPI AF FÁTÆKUM TÉKKNESKUM LISTAMÖNNUM..LEITA AÐ GÓÐA DÁTANUM SVEJK...OG MARGT MARGT FLEIRA....Og það var nú það. Annars er helgin framundan..best að fara að plana hvað ég ætla að gera skemmtilegt...
Bless í bili...

Wednesday, October 02, 2002

Ahha....komst að þeirri niðurstöðu að ég þyrfti að fara að gera eitthvað í fátækt minni...Svo ég keypti mér miða til Prag..Praha...Prague...Mjög gott ráð við fátækt..skella sér á visaflipp til útlanda...en jæja..maður þarf aldrei að borga þennan visa reikning...eða hvað? Ég ætla að fara út 14.október og koma heim þann 17. Aðeins of stutt fyrir minn smekk en ég læt það vera. Geri bara allt á tvöföldum hraða. Kannski leigi ég mér bara hlaupahjól og fer á ofurhraða gegnum kastalann, kirkjuna og bruna yfir Karlsbrúna inná næsta veitingastað sem ég sé og drekk PIVO í hrikalega miklu magni....Pivo=bjór=bier=øl=beer=cerveza.....Jibbí......gamangaman....En já...meira um þetta allt seinna...Fer með mömmu minni-Ingþóri litla..og Gunnsu sys..Heheh..greyið Ingþór..Hanga með fjölskyldu minni í útlöndum hann veit ekki hvað hann á í vændum MUHHAHHAHAHHAAHAHHAHHA...meira seinna..Guð blessi ykkur öll....FALLLALLLAAAAA

Monday, September 30, 2002

Jæja þá...þá byrja ég...Ætla bara að skrifa um mat..Held að það sé best að skrifa bara um aðaláhugamál sitt!!!! Ég stundaði það nefnilega af kappi um helgina og át á við 14 glorsoltna skylmingarþræla!! Fór í matarboð á föstudagsköldið hjá kunningjum mínum þeim Bínu og Dodda....VÁ HVAÐ ÞAÐ VAR GÓÐUR MATUR...og fullt af öli og góðu víni með....Við vorum þarna 10 saman + eitt lítið smákríli sem át ekkert af matnum því það getur ekki melt svona ennþá...(sem var gott því þá fékk ég meira)..... Svo var setið að sumbli fram á nótt og spilað Akksjónarí....Mjög skemmtilegt spil..sérstaklega eftir nokkra öllara....Svo rúlluðu allir heim um 2 leytið...Daginn eftir þurfti ég svo að stússast í afmælisgjafakaupum en það er svo leiðinlegt að ég myndi aldrei skrifa um það.... Á sunnudaginn fór ég svo í skírnarveislu til Dóra og Dittu sem skírðu barnið sitt Hildi Ásu..En ég var ekki mikið að spá í það því ég fór 4 sinnum að kökuborðinu og troðfyllti diskinn minn og lá svo heima hjá mér í gærkveldi og starði sorgbitnum augum og útþanda vömbina á mér og ákvað að borða aldrei framan....Mun eflaust standa lengi við það !!!!!

Held ég muni blogga á nokkurra daga fresti...Lifi of lítt spennandi lífi (fyrir utan störf mín á krókódílabúgarðinum) fyrir meira blogg ;D
Jæja...verð að vera eins og allir hinir...Bloggíblogg...Ætla ekki að skrifa neitt skemmtilegt og hnyttið núna..Sorrý Rebekka að ég valdi eins lúkk á blogginu mínu og þú...hitt var bara allt svo glatað....

This page is powered by Blogger. Isn't yours?